Enrofloxacin tilheyrir flokki kínólóna og verkar bakteríudrepandi gegn aðallega gram-neikvæðum bakteríum eins og Campylobacter, E. coli, Haemophilus, Pasteurella og Salmonella spp. og Mycoplasma.
Meltingarfærasýkingar, öndunarfærasýkingar og þvagfærasýkingar af völdum örvera sem eru næmar fyrir enrofloxacin, eins og Campylobacter, E. coli, Haemophilus, Mycoplasma, Pasteurella og Salmonella spp. í kálfum, nautgripum, sauðfé, geitum og svínum.
Ofnæmi fyrir enrofloxacini.
Gefið dýrum með alvarlega skerta lifrar- og/eða nýrnastarfsemi.
Samhliða gjöf tetrasýklína, klóramfenikóls, makrólíða og linkósamíða.
Gjöf lyfsins ungum dýrum á vaxtarskeiði getur valdið brjóskskemmdum í liðum.
Til inndælingar í vöðva eða undir húð:
Kálfar, nautgripir, sauðfé og geitur:
1 ml á hver 20 - 40 kg líkamsþyngdar í 3 - 5 daga.
Svín: 1 ml á hver 20 - 40 kg líkamsþyngdar í 3 - 5 daga.
Fyrir kjöt:
Kálfar, nautgripir, sauðfé og geitur: 21 dagur.
Svín: 14 dagar.
Fyrir mjólk: 4 dagar.
Geymið við lægri hita en 30°C. Verjið gegn ljósi.