Til samhliða fyrirbyggjandi aðgerða gegn járnskortsblóðleysi og fyrirbyggjandi aðgerða gegn klínískum einkennum koksídíósu (niðurgangs) sem og til að draga úr útskilnaði eggblöðru, hjá grísum á búum með staðfesta sögu um koksídíósu af völdum cystoisospora suis.
Til notkunar í vöðva.
Hristið vel (í 20 sekúndur) fyrir notkun.
Ráðlagður skammtur er 45 mg af toltrazurili og 200 mg af járni á grís, þ.e. 1,5 ml af þessari vöru á grís, sem gefið er einu sinni í vöðvainnspýtingu á bak við eyrað, 24 til 96 klukkustundum eftir fæðingu.
Ekki nota á gríslinga sem grunur leikur á að þeir þjáist af E-vítamín- og/eða selenskorti.
Í mjög sjaldgæfum tilfellum hefur verið greint frá dauðsföllum hjá gríslingum eftir gjöf járnsprautna í æð. Þessi dauðsföll hafa verið tengd erfðafræðilegum þáttum eða skorti á E-vítamíni og/eða seleni.
Greint hefur verið frá dauða grísa sem hefur verið rakinn til aukinnar næmir fyrir sýkingum vegna tímabundinnar stíflu á netfrumnakerfinu.
Kjöt og innmatur: 70 dagar.
Geymið við lægri hita en 30°C. Verjið gegn ljósi.