Til sýklalyfjameðferðar hjá nautgripum, sauðfé, hundum og köttum.
Cefalexín er breiðvirkt sýklalyf af gerðinni cefalosporín með bakteríudrepandi virkni gegn fjölbreyttum gram-jákvæðum og gram-neikvæðum bakteríum.
Til meðferðar við sýkingum af völdum cefalexínnæmra örvera í nautgripum, sauðfé, köttum og hundum.
Nautgripir, sauðfé: Til inndælingar í vöðva í fremri helming hálsins.
Hundar og kettir: Til inndælingar í vöðva eða undir húð.
Vefjaviðbrögð geta komið fram á stungustað. Nuddið stungustaðinn eftir lyfjagjöf.
Ráðlagður skammtur:
Nautgripir: 10 mg/kg (1 ml á hver 20 kg) einu sinni á dag í allt að 5 daga.
Sauðfé: 10 mg/kg (1 ml á hver 20 kg) einu sinni á dag í allt að 5 daga.
Hundar og kettir: 10 mg/kg (1 ml á hver 20 kg) einu sinni á dag í allt að 5 daga.
Ekki ætlað ef um ofnæmi fyrir penisillínum er að ræða. Ekki gefa í bláæð.
Snerting við cefalexín getur valdið ofnæmi eftir inndælingu, innöndun, inntöku eða snertingu við húð. Ekki meðhöndla þessa vöru ef þú veist að þú ert með ofnæmi eða ef þér hefur verið ráðlagt að vinna ekki með slík efni.
Kjöt: 28 dagar.
Mjólk: 3 dagar.
Geymið við lægri hita en 30°C. Verjið gegn ljósi.